“Allt prepp klárt”
hosiló
bókin
Þetta er ekki matreiðslubók og hér eru engar uppskriftir bara góð stemning.
Þessi bók er tilraun til að fanga stemningu, ástríðu og orku sem erfitt er að festa á blað. Bókin safnar því sem annars hverfur: Augnaráð, hreyfingar, gleðina, samtölin, og augnablikin sem móta stemninguna á bak við potta og pönnur, rautt og hvítt og jafnvel einn bílstjóra á veitingastaðnum Hosiló
Smá um Hosiló
Hosiló er lítill og persónulegur veitingastaður í Reykjavík, þekktur fyrir afslappað andrúmsloft, skapandi matargerð, sterkan karakter og frábæra þjónustu.
Nafnið vísar til lítils herbergis eða rýmis — sem á vel við um nána og hlýlega stemninguna á staðnum.
Um höfundinn
Þröstur Valgarðsson er listamaður af þeirri gerð sem virðist alltaf sjá heiminn örlítið frá hlið — sem er oft mun áhugaverðara en að horfa beint fram.
Hvort hann sé misskilinn, langt á undan samtímanum eða einfaldlega með eigin leið til að túlka veruleikann verður látið liggja milli hluta. Hann hefur hins vegar óvenjulega gott auga fyrir stöðum með karakter, hlutum með sögu og hugmyndum sem þurfa ekki endilega að útskýra sig.
Hosiló er því í sérstöku uppáhaldi hjá honum. Lítill staður, sterkur persónuleiki og lítil þörf fyrir að vera eins og allir hinir — sem líklega útskýrir ákveðin tengsl.
Bókin er sjónræn frásögn um veitingastað sem er með Michelin meðmæli og tilnefndur sem besti veitingastaður Norðurlanda 2025.
Hún er ekki aðeins minning um veitingastað heldur sjálfstætt listaverk sem gerir tilraun til að varðveita þessa stemningu, nærveru, og fegurð.
Buon appetito
Greiðsla fer fram í öruggu Shopify greiðsluferli.